Við byggjum upp sterkt, sjálfbært og aðgengilegt samfélag í kringum hjólabretti þar sem allir eru velkomnir. Inniaðstaða í Dugguvogi — opið allt árið.
Brettafélag Reykjavíkur í samstarfi við Reykjavíkurborg býður upp á uppbyggilegt hjólabrettanámskeið fyrir börn á aldrinum 6–12 ára þar sem þátttakendur kynnast hjólabrettaíþróttinni í öruggu umhverfi.
Lögð er áhersla á jákvæða hreyfingu, grunnfærni, samvinnu og félagslegt forvarnargildi. Hentar bæði byrjendum og þeim sem hafa einhverja reynslu. Frekari upplýsingar um dagskrá og fleira kemur síðar.
Endilega hafið samband við okkur í gegnum tölvupóst eða Instagram.
Rætur okkar liggja í Brettafélagi Reykjavíkur sem var stofnað árið 1996 og lagði grunninn að íslenskri hjólabrettamenningu. Þegar félagið lá í dvala varð ljóst að mikilvægur hluti af senunni var í hættu. Hjólabrettamenning á Íslandi á skilið að lifa, dafna og þróast.
Árið 2025 var félagið endurvakið með skýra sýn: að byggja upp sterkt, sjálfbært og aðgengilegt samfélag í kringum hjólabretti þar sem allir eru velkomnir.
Hjólabretti er meira en íþrótt. Það er vettvangur fyrir sköpun, seiglu, sjálfstæði og persónulegan þroska. Við leggjum áherslu á bæði andlega og líkamlega vellíðan og bjóðum upp á opið umhverfi þar sem fólk á öllum aldri, af öllum kynjum og bakgrunni, getur fundið sig, byggt upp sjálfstraust og orðið hluti af samfélagi.
Með aðstöðu okkar innandyra að Dugguvogi 48 tryggjum við aðgengi að hjólabrettaiðkun allt árið, óháð veðri. Þar höldum við námskeið, viðburði og samfélagsverkefni sem styrkja íslensku hjólabrettasenuna og næstu kynslóð iðkenda.
Brettafélag Reykjavíkur er byggt af brettafólki, fyrir brettafólk.
Við erum staðsett í Dugguvogi 48, Reykjavík. Inniaðstaða opin allt árið — óháð veðri.
Endilega hafið samband við okkur ef þið hafið spurningar, hugmyndir eða viljið vita meira um starfsemi Brettafélags Reykjavíkur.
Hægt er að ná í okkur hér eða senda okkur skilaboð á Instagram: @brettafelagreykjavikur_
Við hlökkum til að heyra frá ykkur!